-
1. kafli
Önundur, langafi Grettis, herjar til Skotlands og Írlands með félögum sínum og vinnur Kjarval konung.
-
2. kafli
Orrustan í Hafursfirði: Önundur berst gegn Haraldi hárfagra og missir fótinn — upp frá því kallaður tréfótur.
-
5. kafli
Bálki Blængsson og Hallvarður súgandi, félagar Önundar, sigla til Íslands og nema land í Hrútafirði og Súgandafirði.
-
9. kafli
Önundur siglir sjálfur til Íslands, nemur land á Ströndum og reisir bú í Kaldbak.
-
11. kafli
Önundur eignast soninn Þorgrím (afi Grettis) með Þórdísi; hann er snemma kallaður hærukollur.
-
13. kafli
Þorgrímur hærukollur kaupir Bjarg í Miðfirði. Sonur hans Ásmundur hærulangur, faðir Grettis, fæðist og elst þar upp.
-
14. kafli
Grettir og bernskubrek hans
-
15. kafli
Knattleikur á Miðfjarðarísi
-
16. kafli
Þorkell krafla spáir fyrir sonum Ásmundar. Þingreið — Grettir vegur Skeggja, fyrri útlegðardómur
-
17. kafli
Sigling utan með Hafliða
-
18. kafli
Hjá Þorfinni í Háramarsey: fram til jóla, rýfur haug Kárs
-
19. kafli
Aðfangadagur jóla — berst við tólf berserki
-
20. kafli
Vist hjá Þorfinni fram til vors
-
21. kafli
Sumar í Vogum; hjá Þorkeli í Sálfti — glímir við híðbjörn
-
22. kafli
Vist til vors hjá Þorkeli. Í Vogum vegur Björn, í Steinkeri vegur Hjarranda, hjá Þorfinni aftur, í Túnsbergi vegur Gunnar
-
24. kafli
Heimferð til Íslands
-
28. kafli
Grettir kemur út í Skagafirði. Auðun og glíma, þáttur Barða
-
29. kafli
Hestaþing á Langafit
-
30. kafli
Bardagi við Grettishaf
-
31. kafli
Grettir situr um kyrrt til tvímánaðar. Heiðarvíg. Grettir og Barði finnast við Þóreyjargnúp
-
32. kafli
Reimleikar hefjast í Forsæludal
-
34. kafli
Grettir og Glámur glíma. Grettir situr heima
-
36. kafli
Þorbjörn ferðalangur eggjar Gretti. Grettir á Gásum — ferðalangur veginn. Önnur utanför hefst
-
37. kafli
Kemur að áliðnu sumri til Noregs
-
38. kafli
Fer norður með landi. Þórissynir brenna inni. Leitar á konungsfund í Þrándheimi
-
39. kafli
Tilraun til skírslu (guðsdóms)
-
40. kafli
Fer austur á Jaðar, drepur Snækoll berserk og bjargar Einari bónda
-
41. kafli
Eftir jól til Túnsbergs og er þar til vors. Fer til Íslands um sumarið
-
42. kafli
Þorbjörn öxnamegin drepur Atla, bróður Grettis
-
46. kafli
Grettir dæmdur sekur skógarmaður á alþingi
-
47. kafli
Kemur út. Söðulkolluvísur. Er framyfir túnannir á Bjargi
-
48. kafli
Fellir Þorbjörn öxnamegin og Arnór — hefnir Atla. Er lengi í Ljárskógum um haustið
-
49. kafli
Kemur á Reykhóla nærri veturnóttum og dvelur þar einn vetur
-
51. kafli
Um vorið í Langadal; á Vestfjörðum um sumarið
-
53. kafli
Vetur í Ljárskógum hjá Þorsteini. Er hjá Grími fram yfir þing
-
54. kafli
Situr á Kili um sumarið, leitar ráða hjá Skafta og Grími, fer á Arnarvatnsheiði um haustið — hittir Loft (Hallmund)
-
55. kafli
Fyrsti vetur á Arnarvatnsheiði. Grímur norðlenski flugumaður er veginn
-
56. kafli
Annar og þriðji vetur á heiðinni. Þórir rauðskeggur flugumaður er veginn
-
57. kafli
Bardagi í Hamraskarði. Grettir í Hallmundarhelli. Fer suður á Mýrar um haustið
-
58. kafli
Fyrsti vetur í Fagraskógarfjalli
-
59. kafli
Viðureign við Gísla nær réttum. Annar vetur í Fagraskógarfjalli
-
60. kafli
Sumar og haust í Fagraskógarfjalli, bardagi í Grettisodda. Þriðji vetur þar
-
61. kafli
Leitar til Gríms um þing, fer til fundar við Hallmund og er hjá honum um sumarið
-
61. kafli
Fer um haustið í Þórisdal, veturseta
-
61. kafli
Leitar sér liðs á Austfjörðum um sumarið og veturinn
-
62. kafli
Dauði Hallmundar, vinar Grettis
-
63. kafli
Liggur úti á Möðrudalsheiði og Reykjaheiði um sumarið
-
64. kafli
Kemur nærri jólum í Bárðardal, glímir við tröll, dvelur þar veturinn
-
67. kafli
Fer á fund Guðmundar ríka sem ráðleggur honum Drangey. Situr um sumarið við Bröttubrekku
-
68. kafli
Viðureign við Þórodd Snorrason
-
69. kafli
Illugi og Grettir fara í Drangey um haustið
-
70. kafli
Höfðingjar í Skagafirði eiga hlut í Drangey
-
71. kafli
Bændur hitta Gretti. Fyrsti vetur í Drangey
-
72. kafli
Vorþing og sveitaglíma í Hegranesi
-
73. kafli
Þorbjörn öngull fer að áliðnu sumri til Drangeyjar
-
74. kafli
Annar vetur í Drangey
-
75. kafli
Hið fræga sund Grettis til lands
-
76. kafli
Hæringur hrapar til bana. Þriðji vetur Grettis í Drangey. Snorri goði andast
-
77. kafli
Umræður á þingi um sektarár Grettis
-
78. kafli
Ferð Þuríðar, fóstru Þorbjörns öngla, til Drangeyjar
-
79. kafli
Þuríður magnar rótartréð. Grettir særir sig á fæti með exi
-
80. kafli
Sárið versnar, veðrið hamlar björgun
-
81. kafli
Þorbjörn öngull safnar liði til leiðangurs í Drangey
-
82. kafli
Aðför og fall Grettis og Illuga bróður hans
-
83. kafli
Eftirmál. Frændur Grettis og Illuga safnast að Ásdísi
-
85. kafli
Skeggi sækir lík Grettis og Illuga til greftrunar. Þorbjörn öngull siglir til Noregs
-
86. kafli
Þorsteinn drómundur hefnir Grettis með því að vega Þorbjörn öngul í Miklagarði
-
87. kafli
Þorsteinn situr í dýflissu, dæmdur til dauða
-
88. kafli
Spes heyrir kveðskap Þorsteins og lætur leysa hann úr haldi
-
89. kafli
Ástarsamband Spesar og Þorsteins í leyni
-
91. kafli
Spes fær skilnað og giftist Þorsteini drómundi
-
92. kafli
Þau selja eigur sínar og fara í pílagrímsferð til Rómar
-
93. kafli
Þau ljúka ævinni sem einsetufólk í Róm — sögulok